Chronologiste Bain Régénérant Shampoo 250ml
Chronologiste Bain Régénérant Shampoo 250ml
Couldn't load pickup availability
Ný og uppfærð formúla með innblástur frá húðhumhirðu.
Revitalising youth shampoo for hair weakened by signs of ageing.
Lúxus “youth” sjampó fyrir hár sem sýnir merki um öldrun.
Endurnærandi sjampó sem er sérstaklega hannað fyrir hár sem hefur misst mýkt, fyllingu og glans með tímanum. Það hentar vel þegar hárið sýnir merki um öldrun,eins og þurrk, slappleika, frizz og skort á þéttleika.
Formúlan er auðguð með öflugum innihaldsefnum úr húðvörum, þar á meðal hýalúrónsýru og Abyssine, sem hjálpa til við að veita djúpan raka, styrkja hárþráðinn og bæta ásýnd hársins.
Sjampóið hreinsar hárið á mildan en áhrifaríkan hátt og skapar hreinan grunn fyrir frekari umhirðu. Á sama tíma hjálpar það til við að vernda hárið og hársvörðinn gegn daglegu álagi og umhverfisáhrifum, svo hárið haldi ferskleika sínum og lífskrafti.
Hárið verður mýkra, fyllra og viðráðanlegra, með heilbrigðari og fallegri ásýnd.
• Allt að 97% minna hárbrot*
• Allt að 75% meiri næring í hárinu*
• 90% upplifa hreinni og ferskari hársvörð **
Létt gel-áferð breytist í ríkulega froðu sem umvefur hárið og hreinsar það án þess að þyngja.
Einkennandi ilmur Chronologiste – með nótum af bergamot, rós og patchouli umbreytir daglegri umhirðu í sannkallaða lúxus.
Rétt eins og húðin er hárið sýnilegur þáttur í því hvernig við upplifum aldur og vellíðan. Þegar hárið missir mýkt, fyllingu og glans getur það haft áhrif á heildarútlit og sjálfstraust.
5 merki um öldrun hárs
Kérastase hefur skilgreint helstu einkenni öldrunar í hári:
• Frizz og óviðráðanleg áferð
• Slappleiki og skortur á glans
• Minni þéttleiki
• Skortur á fyllingu
• Tap á mýkt og lífskrafti
Til að bregðast við þessum þáttum hefur Kérastase þróað markvissa umhirðu sem vinnur á þessum einkennum samtímis.
Línan inniheldur meðal annars nýstárlegt næturserum, sem vinnur á hárinu yfir nótt og hjálpar til við að bæta ásýnd þess, styrkja hárþráðinn og styðja við mýkt, fyllingu og glans.
Hvernig á að nota
Hvernig á að nota
Skref 1:
Bleyttu hárið og hársvörðinn vel.
Skref 2:
Taktu lítið magn af sjampóinu (um það bil myntstærð) og berðu í hársvörð og hár.
Skref 3:
Nuddaðu varlega með fingurgómunum í hársvörðinn og dreifðu froðunni út í lengdir.
Þetta hjálpar til við að hreinsa hárið vel og örva hársvörðinn.
Skref 4:
Skolaðu vandlega þar til hárið er alveg hreint. Endurtaktu ef þörf er á fyrir dýpri hreinsun.
Upplýsingar & Innihaldsefni
Upplýsingar & Innihaldsefni
🔬 Vísindin á bak við Chronologiste
Eins og húðin eldist hárið líka með tímanum.
Breytingarnar geta komið smám saman og tengjast bæði innri þáttum (eins og hormónum og aldri) og ytri álagi (eins og hita, litun og umhverfi).
“Caviar of Longevity”
Daglegt álag á hárið eins og umhverfiþættir, hitatæki og stíling á hárinu getur með tímanum haft áhrif á ástand hárþráðarins og hraðað svokölluðum öldrunarmerkjum hársins.
Rétt eins og húðin er hárið sýnilegur þáttur í því hvernig við upplifum aldur og vellíðan. Þegar hárið missir mýkt, fyllingu og glans getur það haft áhrif á heildarútlit og sjálfstraust.
Þurrkur
Hárið tapar raka með tímanum og verður þurrara og grófara viðkomu.
Slappleiki
Hárið missir náttúrulegan glans og ljóma og virðist líflaust.
Minni fylling og þéttleiki
Hárið getur orðið fíngerðara og minna þétt, sem gefur minni fyllingu í heildarútliti.
Frizz og viðkvæm áferð
Hárið verður erfiðara í meðförum, meira rafmagnað og viðkvæmara fyrir raka og veðri.
Meira hárbrot
Veikara hár brotnar auðveldara við bursta, stílingu eða daglegt álag.
Tap á styrk og teygjanleika
Hárið missir sveigjanleika og verður stífara og brothættara.
Með aldrinum:
• minnkar náttúruleg framleiðsla á raka og fitu
• hársekkir veikjast smám saman
• hárþráðurinn verður viðkvæmari
Samhliða því hefur umhverfið áhrif:
• hitatæki
• litun og efnameðferðir
• sól, vindur og mengun
Öldrun í hári snýst ekki bara um aldur,heldur hvernig hárið er og hegðar sér.
Þegar þessi einkenni koma fram er mikilvægt að velja umhirðu sem:
• gefur raka
• styrkir hárið
• verndar gegn álagi
Háþróuð virkni úr húðvörum
Chronologiste línan er innblásin af virkni húðvara og inniheldur öflug innihaldsefni sem vinna markvisst að því að bæta ástand hárs sem sýnir merki um öldrun.
Formúlan er auðguð með háþróuðum virkum efnum sem hjálpa til við að endurheimta mýkt, fyllingu og glans -fyrir hár með heilbrigðari og fágaðri ásýnd.
Hyaluronic Acid
Djúp rakagefandi virkni
Hýalúrónsýra veitir hársvörð og hári djúpan raka og hjálpar til við að fylla hárþráðinn, sem gefur þykkara og fyllra útlit.
Mýkra, fyllra og betur rakabundið hár.
Abyssine
Endurnærir og styrkir
Abyssine hjálpar til við að styrkja hárþráðinn og bæta áferð hans, fyrir sléttara og fágaðra útlit.
Sterkara hár með fallegri áferð og auknum ljóma.
E-vítamín
Næring og vernd
E-vítamín nærir hársvörðinn og hjálpar til við að læsa raka inn í hárið, á sama tíma og það bætir glans og mýkt.
Heilbrigðara, glansmeira og silkimjúkt hár.
AQUA / WATER / EAU
• SODIUM LAURETH SULFATE
• COCAMIDOPROPYL BETAINE
• LAURETH-5 CARBOXYLIC ACID
• COCAMIDE MIPA
• ISOSTEARYL NEOPENTANOATE
• SODIUM CHLORIDE
• SODIUM LAURYL SULFATE
• POLYQUATERNIUM-10
• AMODIMETHICONE
• PPG-5-CETETH-20
• SODIUM BENZOATE
• SODIUM HYDROXIDE
• CITRIC ACID
• PEG-55 PROPYLENE GLYCOL OLEATE
• PROPYLENE GLYCOL
• PEG-60 HYDROGENATED CASTOR OIL
• SALICYLIC ACID
• BENZYL SALICYLATE
• HEXYL CINNAMAL
• LINALOOL
• BENZYL ALCOHOL
• CARVONE
• CITRUS AURANTIUM PEEL OIL
• TETRAMETHYL ACETYLOCTAHYDRONAPHTHALENES
• LIMONENE
• BUTYLENE GLYCOL
• POGOSTEMON CABLIN OIL
• CITRONELLOL
• LINALYL ACETATE
• GERANIOL
• BISABOLOL
• 2-OLEAMIDO-1,3-OCTADECANEDIOL
• TOCOPHEROL
• HYDROXYCITRONELLAL
• SODIUM HYALURONATE
• ALTEROMONAS FERMENT EXTRACT
• PARFUM / FRAGRANCE
Share
