Fondant Renforcateur Conditioner 200ml
Fondant Renforcateur Conditioner 200ml
Couldn't load pickup availability
HÁRLOS / HÁRFALL
Nourishing & Fortifying Conditioner
Styrkjandi og kremkennd létt næring fyrir veikt hár með tilhneigingu til hárbrots og hárloss.
Formúlan vinnur markvisst gegn broti með því að styrkja hártrefjarnar og endurbyggja yfirborð þeirra, á sama tíma og hún veitir djúpa næringu með einstaklega léttri áferð sem þyngir ekki hárið.
Helstu eiginleikar
- Styrkir og ver hárið gegn broti
- Endurbyggir hártrefjarnar og eykur mótstöðu þeirra
- Mýkir og sléttir án þess að þyngja
- Veitir djúpa næringu með léttu “finish”
- Gerir hárið jafnara, glansmeira og sterkara
🔬Tvöföld virkni – frá rót útí enda
Formúlan byggir á markvissri tvíþættri nálgun sem vinnur samtímis á tveimur lykilsviðum: hársverði og hártrefjum.
Með því næst heildstæðari árangur þar sem unnið er bæði með orsök og afleiðingu.
Hársvörður og rót:
- Styður við heilbrigt jafnvægi í hársverðinum
- Skapar betra umhverfi fyrir hársekkina
- Hjálpar til við að draga úr hárlosi sem tengist veikleika og álagi
Hártrefjar og lengdir:
- Styrkir uppbyggingu hársins og eykur mótstöðu gegn sliti
- Dregur úr broti vegna burstunar, hitatækja og umhverfisáhrifa
- Skilar hári sem er silkimjúkt, sterkara og betur varið gegn daglegu álagi
Virk innihaldsefni:
Öflug blanda virkra innihaldsefna vinnur saman að því að styrkja, vernda og bæta heildarástand hársins:
- Edelweiss frumur – öflug andoxunarvörn sem ver hárið gegn daglegu álagi
- Engiferrót (Ginger Root Extract) – styrkir varnarhæfni hársins gegn utanaðkomandi áhrifum
- Koffín – örvar hársvörðinn og styður við heilbrigðara umhverfi hársins
- Arginine – styrkir hártrefjarnar, bætir yfirborð þeirra og eykur mótstöðu gegn sliti
Ráðlegging frá fagfólki:
Ef markmiðið er að styrkja hárið og draga úr hárlosi, þarf að vinna þar sem vandinn byrjar – við rótina.
Hárumhirða snýst ekki lengur bara um sjampó og næringu. Sjampó hreinsar og undirbýr, en serum vinnur dýpra, með lengri virkni og áhrif beint á hársverðinn.
👉 Fyrir hámarks árangur er mælt með að nota Genesis rútínu í heild, þar sem serum gegnir lykilhlutverki í að meðhöndla orsökina – ekki bara einkenni og þar spilar hárvarðarserumið lykilhlutverki.
Hvora næringuna á ég að velja?
Báðar næringarnar styrkja hárið og draga úr broti.
Munurinn liggur í því hversu mikla næringu hárið þitt þarf.
Fondant Renforçateur (létt næring)
Hentar fyrir þig ef hárið er normal – fíngert eða verður auðveldlega flatt.
Létt formúla sem mýkir, styrkir og greiðir úr án þess að þyngja.
Masque Reconstituant (maski)
Hentar fyrir þig ef hárið er normal – þykkt, þurrt eða skemmt.
Ríkari formúla sem veitir djúpa næringu, mýkt og uppbyggingu.
Hvernig á að nota
Hvernig á að nota
Berið lítið magn í nýþvegið, handklæðaþurrt hár
Nuddið frá miðju hár og út í enda en forðist að bera í rótina til að halda lyftingunni
Látið bíða í 2-3 mínútur
Skolið vel
Upplýsingar & Innihaldsefni
Upplýsingar & Innihaldsefni
Lykilinnihaldsefni og virkni:
Aminexil (1,5%)
Sérhæft virkt efni gegn hárlosi frá rótum.
Vinnur gegn hörðnun kollagens í kringum hársekkina sem annars getur gert hárið lausara í festunni.
Hjálpar hárinu að haldast lengur í vaxtarfasa (anagen) → dregur úr ótímabæru hárlosi.
Engiferrót (Ginger Root Extract)
Rík af andoxunarefnum og hefur örvandi áhrif á blóðflæði í hársverði.
Styður við næringu hársekkja og verndar gegn daglegum umhverfisáhrifum (mengun, oxunarálag).
Hefur einnig mildan bólgueyðandi og örvandi eiginleika.
Edelweiss Native Cells (edelweiss frumur)
Plöntuþykkni úr edelweiss blómi, þekkt fyrir mikla þolni gegn erfiðum aðstæðum (háfjallaloft, kuldi, UV).
Hefur öflug andoxunaráhrif og ver hárþræðina gegn oxunarálagi.
Styrkir hártrefjarnar svo þær verði minna viðkvæmar fyrir broti.
Aqua / Water / Eau • Cetearyl Alcohol • Stearamidopropyl Dimethylamine • Isopropyl Myristate • Glycerin • Glycine Soja Oil / Soybean Oil • Helianthus Annuus Seed Oil / Sunflower Seed Oil • Coco-Caprylate/Caprate • Cetyl Esters • Tartaric Acid • Caprylyl Glycol • Salicylic Acid • Limonene • Hydroxypropyl Guar Hydroxypropyltrimonium Chloride • Linalool • Benzyl Salicylate • Coumarin • Zingiber Officinale Root Extract / Ginger Root Extract • Citral • Benzyl Alcohol • Citronellol • Xylitylglucoside • Anhydroxylitol • Leontopodium Alpinum Callus Culture Extract • Xylitol • Citric Acid • Xanthan Gum • Dipeptide Diaminobutyroyl Benzylamide Diacetate • Parfum / Fragrance. C245182/1.
Share
