Genesis Serum Anti-Chute Fortifiant 90ml
Genesis Serum Anti-Chute Fortifiant 90ml
Couldn't load pickup availability
HÁRLOS/HÁRFALL
Reduces Breakage - Nourishing - Healthy Hair
Hársvarðarserum er lykillinn að því að styðja við rótina, draga úr hárlosi og leggja grunn að sterkara, heilbrigðari hári. Sjampó og næring sjá um lengdirnar – en serumið vinnur þar sem vandinn byrjar: í hársekknum.
Fyrirbyggjandi & styrkjandi hársvarðarserum til daglegra nota til að sporna gegn hárlosi & stykir hárið.
Þetta serum dregur sýnilega úr hárlosi og styrkir hársekkina til að bæta festu hársins í hársverðinum.
Létt formúla sem þyngir ekki hárið.
Mikilvægt er að nota daglega í minnsta kosti 6.vikur.
Auðgað með Edelweiss frumum, engiferrót og Aminexil, sem vinna saman að því að styrkja hárið og draga úr hættu á hárlosi vegna brots.
-
Aminexil 1.5% Hindrar hörðnun kollagens í kringum hársekkina (sem getur þrengt að rótinni og gert hárið brothætt).Styrkir hársekkina og bætir festu hársins við hársvörðinn.Lengir líftíma hársins í vaxtarfasanum (anagen-phase) og stuðlar þannig að þéttara og sterkara hári.
- Ginger Root Extract/ Engiferrót: Hefur örvandi áhrif á blóðrásina í hársverði sem bætir næringarflæði til hársekkjanna.Náttúrulegt efni með bólgueyðandi og andoxandi eiginleika.Styður við endurnýjun hársvarðarins og hjálpar til við að skapa heilbrigt umhverfi fyrir hárvöxt.
- Arginine: amínósýra sem gegnir mikilvægu hlutverki í því að styrkja og vernda hárþráðinn, svo það brotni síður og veikist fyrir mótsöðumeira hár.
- Koffín: Örvar blóðrásina í hársverðinum, þökk sé eiginleikum þess.
🔬 Af hverju er serum mikilvægt?
Þegar kemur að hárlosi skiptir mestu máli að vinna þar sem vandinn byrjar í hársverðinum.
Þar liggja hársekkirnir sem stýra hárvextinum, og því þarf markvissa umhirðu sem nær alla leið að rót.
Sjampó og næring eru mikilvæg til að hreinsa, styrkja og vernda hárið, en þau eru aðeins í snertingu við hársvörðinn í stuttan tíma.
Með reglulegri notkun getur serum:
• Styrkt hársekkina
• Stuðlað að heilbrigðari hárvexti
• Hjálpað til við að draga úr hárlosi
• Bætt jafnvægi í hársverðinum
Án þessa skrefs nær umhirðan ekki fullum árangri, þar sem ekki er unnið beint á rót vandans.
Serum er ekki aukavara - það er lykilþáttur í árangursríkri meðferð gegn hárlosi.
Hvernig á að nota
Hvernig á að nota
Mælt með að nota daglega að morgni eða fyrir svefn yfir 6 vikna tímabil
Berið 3-4 skammta í hársvörðinn (1 skammtur = 1 pumpa) í þurran eða handklæðablautan hársvörð, hluta fyrir hluta
Nuddið varlega
Ekki skola
Mótið að vild með því að blása eða láta þorna náttúrulega
Upplýsingar & Innihaldsefni
Upplýsingar & Innihaldsefni
Hársvarðarserum er lykillinn að því að styðja við rótina, draga úr hárlosi og leggja grunn að sterkari, heilbrigðari hári. Sjampó og næring sjá um lengdirnar – en serumið vinnur þar sem vandinn byrjar: í hársekknum.
Flestar vörulínur gegn hárlosi taka aðeins á einum þætti - annaðhvort frá rótum eða hárinu sjálfu.
Genesis línan er fyrsta línan frá Kérastase sem sameinar bæði með tvöfaldri virkni.
Hún stykrir hársekkina ( minnkar hárlos frá rót) og hún styrkir hárþráðinn ( minnkar hárlos vegna brots)
Hárlos frá rótinni(Biological hair loss)
Hárið losnar fyrr úr hársekknum frá rótinni en í eðlilegum hárvaxtarhring ( anagen → telogen).
Orsakir: hormónabreytingar, streita, veikindi, lyf, næringarskortur, erfðir, öldrun o.fl.
Afleiðing: þynnra hár, minni þéttleiki, sýnilegt hárlos í t.d surtu og burtstanum.
Hvernig Genesis hjálpar:
Aminexil heldur kollageninu í kringum hársekkina mjúku svo hárfestan verði stöðugri og hárið haldist lengur í vaxtarfasa.
Engiferrót (ginger root) örvar blóðflæði og næringu til hársekka.
Þetta styður við heilbrigðan hárvöxt beint frá hársekknum.
Hárlos vegna brots (Mechanical Hair Fall)
Lengdin á hárinu brotnar án þessa að fá tækifæri til að ná fullum vexti.
Orsakir: ofnotkun á hitatólum, efnameðferðir (litun, aflitanir), bursta- eða stílingarálag, umhverfisstreita (sól, vindur, mengun).
Afleiðing: hárið virðist þynnra, endar klofna og þú tekur eftir hárbroti á koddaveri, í blásara eða bursta. Ójafnar hárlengdir, tap á glans, meira frizz og viðkvæmni við broti.
Hvernig Genesis hjálpar:
Edelweiss-blómafrumur verja hárið gegn oxunarálagi og styrkja trefjabyggingu hársins.
Nærandi formúlur (sjampó, fondant, maski, hitavörn) styrkja hárstrengi svo þeir þoli álag án þess að brotna.
Defense Thermique verndar hárið sérstaklega gegn hita upp í 230°C.
🔬 Af hverju er serum mikilvægt?
Þegar kemur að hárlosi skiptir mestu máli að vinna þar sem vandinn byrjar í hársverðinum.
Þar liggja hársekkirnir sem stýra hárvextinum, og því þarf markvissa umhirðu sem nær alla leið að rót.
Sjampó og næring eru mikilvæg til að hreinsa, styrkja og vernda hárið, en þau eru aðeins í snertingu við hársvörðinn í stuttan tíma.
Með reglulegri notkun getur serum:
• Styrkt hársekkina
• Stuðlað að heilbrigðari hárvexti
• Hjálpað til við að draga úr hárlosi
• Bætt jafnvægi í hársverðinum
Án þessa skrefs nær umhirðan ekki fullum árangri, þar sem ekki er unnið beint á rót vandans.
Serum er ekki aukavara - það er lykilþáttur í árangursríkri meðferð gegn hárlosi.
Með því að nota það daglega styður þú við hárið þar sem það skiptir mestu máli og hjálpar því að verða sterkara, þéttara og heilbrigðara með tímanum
🔬 Serum í Kérastase Genesis – hver er munurinn?.
Genesis línan byggir á því að hárlos er samspil margra þátta og krefst því mismunandi nálgana eftir ástandi hársvarðar og hárvaxtarhrings.
Innan línunnar eru þrjár mismunandi meðferðir sem vinna á hársverðinum en með ólíkan tilgang:
daglegt viðhald
markviss inngripsmeðferð
róa og jafnvægi hársvarðar
Genesis Serum Anti-Chute Fortifiant
Daglegt serum til viðhalds og stuðnings við hárvöxt
Hentar þeim sem vilja styðja við heilbrigðan hárvöxt og vinna markvisst gegn hárlosi yfir lengri tíma.
Formúlan vinnur á hársverðinum og hjálpar til við að skapa betri aðstæður fyrir heilbrigðan hárvöxt.
Hún styður við festu hársins í rót, hjálpar til við að styrkja hársvörðinn og vinnur þannig gegn hárlosi frá rót með reglulegri notkun.
Til að sjá sýnilegan árangur er mælt með samfelldri notkun í að minnsta kosti 6 til 9 vikur, og oft lengur ef markmiðið er viðhald og áframhaldandi stuðningur við hárið.
Genesis Cure Anti-Chute
Öflug kúrameðferð sem er notuð þegar hárlos er orðið mikið og áberandi.
Hún er því ekki aðeins hugsuð sem daglegt viðhald, heldur sem öflug inngripsmeðferð.
Við aukið hárlos getur hárvaxtarhringurinn raskast. Fleiri hár fara of snemma í hvíldarfasa og losna úr hársekknum áður en þau hafa lokið sínum eðlilega vaxtartíma.
Þessi kúr er hannaður með það í huga að vinna á hársverðinum með samþjappaðri og markvissari nálgun og hentar sérstaklega vel þegar hárlos tengist til dæmis streitu, veikindum, hormónabreytingum eða tímabilum þar sem viðkomandi finnur skýrt fyrir meira hárlosi en venjuleg
Það sem aðgreinir þessa meðferð frá daglegu serum er hversu markvisst hún er hugsuð sem kúrameðferð.
Hún inniheldur sömu lykilinnihaldsefni, en í öflugri og markvissari samsetningu, sem gerir henni kleift að vinna hraðar og dýpra á hársverðinum. Meðferðin er því notuð sem kúr yfir styttri tíma, þegar þörf er á að grípa inn í virkt hárlos og styðja við hárvaxtarhringinn.
Genesis Cure Apaisante
Róandi meðferðaskot fyrir viðkvæman hársvörð.
Ekki allt hárlos tengist eingöngu hárvaxtarhringnum sjálfum. Í sumum tilfellum getur viðkvæmur, ertur eða hársvörður í ójafnvægi haft áhrif á vellíðan, þægindi og heildarástand hársins. Þar kemur Genesis Cure Apaisante inn.
Þessi meðferð er hönnuð til að róa hársvörðinn og styðja við heilbrigðara jafnvægi. Hún hentar sérstaklega vel ef hársvörðurinn er viðkvæmur, pirraður eða ef viðkomandi finnur fyrir kláða, spennu eða óþægindum.
Hvernig velur þú rétta serum meðferð?
Val á serum fer fyrst og fremst eftir því hvað er að gerast í hársverðinum og hvernig hárlosið birtist.
Ef markmiðið er að styðja við hárvöxt daglega, vinna gegn hárlosi yfir lengri tíma og viðhalda árangri, þá er Genesis Serum Anti-Chute Fortifiant góður kostur.
Ef hárlosið hefur aukist skyndilega, er orðið sýnilegra eða viðkomandi er á tímabili þar sem meiri stuðningur er nauðsynlegur, þá hentar Genesis Cure Anti-Chute betur sem intensív kúrameðferð.
Ef aðalvandinn er viðkvæmur eða pirringur í hársverði, þá getur Genesis Cure Apaisante verið rétt lausn.
Share
