Skip to product information
1 of 6

Masque Reconstituant 200ml

Masque Reconstituant 200ml

Venjulegt verð 12.400 kr
Venjulegt verð Útsöluverð 12.400 kr
Útsala Uppselt
Verð með VSK Sendingarkostnaður reiknaður út við afgreiðslu.
Magn

HÁRLOS / HÁRFALL
Nourishing & Fortifying Hair Mask

Styrkjandi hármaski gegn hárlosi í veiku hári sem hefur tilhneigingu til að brotna.

Rík blandan nærir á kröftugan hátt, minnkar flóka, styrkir hárið og minnkar þannig líkurnar á að hárið brotni.

Formúlan vinnur markvisst gegn broti með því að styrkja hártrefjarnar og endurbyggja yfirborð þeirra, á sama tíma og hún veitir djúpa næringu  með einstaklega léttri áferð sem þyngir ekki hárið.

Helstu eiginleikar

  • Styrkir og ver hárið gegn broti
  • Endurbyggir hártrefjarnar og eykur mótstöðu þeirra
  • Mýkir og sléttir án þess að þyngja
  • Veitir djúpa næringu með léttu “finish”
  • Gerir hárið jafnara, glansmeira og sterkara

🔬Tvöföld virkni – frá rót útí enda
Formúlan byggir á markvissri tvíþættri nálgun sem vinnur samtímis á tveimur lykilsviðum: hársverði og hártrefjum.

Með því næst heildstæðari árangur þar sem unnið er bæði með orsök og afleiðingu.

Hársvörður og rót:

  • Styður við heilbrigt jafnvægi í hársverðinum
  • Skapar betra umhverfi fyrir hársekkina
  • Hjálpar til við að draga úr hárlosi sem tengist veikleika og álagi

Hártrefjar og lengdir:

  • Styrkir uppbyggingu hársins og eykur mótstöðu gegn sliti
  • Dregur úr broti vegna burstunar, hitatækja og umhverfisáhrifa
  • Skilar hári sem er silkimjúkt, sterkara og betur varið gegn daglegu álagi

Virk innihaldsefni:
Öflug blanda virkra innihaldsefna vinnur saman að því að styrkja, vernda og bæta heildarástand hársins:

  • Edelweiss frumur – öflug andoxunarvörn sem ver hárið gegn daglegu álagi
  • Engiferrót (Ginger Root Extract) – styrkir varnarhæfni hársins gegn utanaðkomandi áhrifum
  • Koffín – örvar hársvörðinn og styður við heilbrigðara umhverfi hársins
  • Arginine – styrkir hártrefjarnar, bætir yfirborð þeirra og eykur mótstöðu gegn sliti

Ráðlegging frá fagfólki:
Ef markmiðið er að styrkja hárið og draga úr hárlosi, þarf að vinna þar sem vandinn byrjar – við rótina.

Hárumhirða snýst ekki lengur bara um sjampó og næringu. Sjampó hreinsar og undirbýr, en serum vinnur dýpra, með lengri virkni og áhrif beint á hársverðinn.

👉 Fyrir hámarks árangur er mælt með að nota Genesis rútínu í heild, þar sem serum gegnir lykilhlutverki í að meðhöndla orsökina – ekki bara einkenni og þar spilar hárvarðarserumið lykilhlutverki.

Hvora næringuna á ég að velja?
Báðar næringarnar styrkja hárið og draga úr broti.
Munurinn liggur í því hversu mikla næringu hárið þitt þarf.

Fondant Renforçateur (létt næring)
Hentar fyrir þig ef hárið er normal – fíngert eða verður auðveldlega flatt.
Létt formúla sem mýkir, styrkir og greiðir úr án þess að þyngja.

Masque Reconstituant (maski)
Hentar fyrir þig ef hárið er normal – þykkt, þurrt eða skemmt.
Ríkari formúla sem veitir djúpa næringu, mýkt og uppbyggingu.

Hvernig á að nota

Sett í hárið eftir þvott

Biðtími 5 – 10 mínútur

Skolið vel

Upplýsingar & Innihaldsefni

Lykilinnihaldsefni og virkni:

Aminexil (1,5%)​
Sérhæft virkt efni gegn hárlosi frá rótum.​
Vinnur gegn hörðnun kollagens í kringum hársekkina sem annars getur gert hárið lausara í festunni.​
Hjálpar hárinu að haldast lengur í vaxtarfasa (anagen) → dregur úr ótímabæru hárlosi.​
Engiferrót (Ginger Root Extract)​

Rík af andoxunarefnum og hefur örvandi áhrif á blóðflæði í hársverði.​
Styður við næringu hársekkja og verndar gegn daglegum umhverfisáhrifum (mengun, oxunarálag).​
Hefur einnig mildan bólgueyðandi og örvandi eiginleika.​
Edelweiss Native Cells (edelweiss frumur)​

Plöntuþykkni úr edelweiss blómi, þekkt fyrir mikla þolni gegn erfiðum aðstæðum (háfjallaloft, kuldi, UV).​
Hefur öflug andoxunaráhrif og ver hárþræðina gegn oxunarálagi.​
Styrkir hártrefjarnar svo þær verði minna viðkvæmar fyrir broti.


Aqua / Water / Eau • Cetearyl Alcohol • Amodimethicone • Behentrimonium Chloride • Cetyl Esters • Isopropyl Alcohol • Trideceth-6 • Phenoxyethanol • Limonene • Cetrimonium Chloride • Linalool • Chlorhexidine Dihydrochloride • Benzyl Salicylate • Coumarin • Glycerin • Zingiber Officinale Root Extract / Ginger Root Extract • Citral • Benzyl Alcohol • Citronellol • Xylitylglucoside • Anhydroxylitol • Leontopodium Alpinum Callus Culture Extract • Xylitol • Citric Acid • Xanthan Gum • Dipeptide Diaminobutyroyl Benzylamide Diacetate • Parfum /Fragrance. C239854/1.

View full details